05.04.2006 14:23:42 / tigger

Einn tveir og lauma!!!

Jæja drengir, ákvörðun hefur verið tekin, ég er að skipta um blogg!!! Vona að þetta skapi ekki meiriháttar vandræði fyrir ykkur.

Allir meira en velkomnir á.... *trommusláttur*

www.tigger.bloggar.is

Þeink jú verí næs - mun ég altso slútta þessari búllu og gefa skít í blog.central.is!!!

Veriði sælir góðir hálsar og hafiði magnífísent dei!!!

Helga -Uuunuuuuur UUnnnuuuurr... akkurru ertu sona blá-


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 16:48:01 / tigger

Þú ert nú soddans aumingji....

Nýtt blogg komið í gagnið sem ég er mikið að pæla í því að fara að nota

www.tigger.bloggar.is

Finnst nefnilega blog.central vera orðið leiðinlegt og ljótt, það er aldrei gert neitt í þessu gallaða og sumt sem hefur þeir hafa lofað að ráða bót á hafa þeir aldrei lagað!! Óþolandi pakk.

Á samt eftir að skoða þessa skiptingu betur.

Göturnar á Egilsstöðum eru í rusli.

Helga


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 20:47:08 / tigger

Bara fyrir Möggu..

taka úr þvottavélinni hjá mér er brandari. Ef ég er með brjóstarhaldara og eitthvað svoleiðis bandastöff er ég svona hálftíma að greyða úr flækjunni!!

Snjókross um helgina (útlendingur nr. 5 vann :P ). Bærinn fullur af snjósleðahommum sem breyddu úr sér með sín fjögur hundraðáttatíuogfjögurratommu dekk + aftanívagn með þrjátíuogsex sleðum á. Ofsalega gaman. Bidda náði að draga mig til Lindu og Kára (ég sem ætlaði að eiga góða stund fyrir framan sjónvarpið; hrjótandi) af því að hún nennti ekki að labba!! Djöfulsins beyglan. Ég bláedrú var að gera góða hluti með mitt kranavatn. Fullasta manneskja þessa kvölds var án efa Ester (seinna nafnið man ég ekki). Hún sýndi okkur þennan líka frábæra dans og hrundi svoleiðis á hausinn að annað eins hefur ekki sést! Við vorum líka með alvarlegar heyrnarskemmdir eftir kvöldið útaf píkuskrækjum hennar!

Ég fór síðan að sofa þegar þau skelltu sér á ball. Ballið var að mér skilst ekki mjög friðsælt. Þegar svona margir sleðahommar koma saman, þá er sko gaman! Allt alveg snjölduvitlaust og Kári var barinn í rútunni á leiðinni heim... litla greyið *ehehahahhaheeheLOLOLOL*

Gulrótarbuxur? Skil þær ekki, hvaða maður vill láta sjá sig í svoleiðis helvíti? Ótrúlegir þessir tískustraumar. Einn mánuðinn getur maður labbað inn í búð og fundið flutt af flottum buxum, en næsta, eru einhverjir forljótir larfar til sölu sem ekki nokkur heilvita manneskja getur hugsað sér að ganga í! Ég er mikið að pæla í því að fara að hamstra buxur til mögru áranna!!

3 banaslysið við Kárahnjúka í gær. Og allt íslendingar. Ég ætla ekki einu sinni að reyna að tjá hugsanir mínar hérna á prent, takk kærlega fyrir.

Bold and the Beautiful. Bidda þýddi það þegar hún var lítil sem Þeir sköllóttu og þeir fallegu!!!!!!

Er e-ð farin að skoða lýðháskóla í Danmörku, en kann bara ekkert að leyta. Er búin að finna eitthvað sem langar að læra t.d. teikningu, e-ð svona málaradót, nudd, ljósmyndun, glerlyst, keramik, matreyðslu o.fl. sjálfsagt sem ég kann ekki skil á! Held að það sé komið á hreint að við Þórdís Eva förum saman (vona að sú ákvörun endist) og þá þurfum við að finna einhvern skóla með öllu þessu sem ég taldi upp og sem er svona fjölskylduvænn.... úff mama mia!!

Mamma þín mamma þín mamma þín þín BEYGLA!

Fréttir frá dédévaffinu koma bráðlega... fer í viktun á morgun og vona þá að ég verði búin að ná 5 kg. Var komin með 4,5 fyrir viku svo þetta hlítur að vera komið! Dédévaffið (de danske vægtkonslulenter) er altso þessi danski kúr sem ég er á. Var að reyna að finna eitthvað kúl nafn á þetta og kom þá upp með Daffið (Hey, are u a daffy?) Getur ekki verið meira kúl....

Er að pæla í að enda þetta hundleiðinlega blogg sem átti að vera eitthvað kúl en var það bara ekki... ég held ég sé e-ð andlaus núna... .ÉG VIL BARA FÁ SUMAR!!!

Helga -mig langar á snjósleða!!!!!-


» 6 hafa sagt sína skoðun

31.03.2006 15:07:17 / tigger

61% :D

Ég er nú ekki nema 61%

Start with 100%, and take away 1% for everything you've
done/that's happened to you on this list. Put the number you
are left with in the subject line. For example, if you did one
thing on this list you would put 99%.

Smoked.
Drank alcohol.
Cried when someone died.
Been drunk.
Had sex.
Been to a concert.
Given a handjob/gotten a handjob.
Given a blowjob/gotten a blowjob.
Been verbally/sexually harassed.
Verbally/sexually harassed somebody.
Felt someone up and/or been felt up.
Laughed so hard something came out of your nose.
Cheated on a boyfriend/girlfriend before.
Been cheated on by a boyfriend/girlfriend.
Been to a prom.
Cried at school.
Gotten lost in a WalMart or a department store.
Went streaking.
Given a lap dance.
Had someone of the opposite sex in your room.
Had someone of the opposite sex sleep over.
Slept over at someone of the opposite sex's house.
Kissed a stranger.
Hugged a stranger.
Went scuba diving.
Driven a car.
Gotten an xray.
Hit by a car.
Had a party.
Done drugs.
Played strip poker.
Got paid to strip for someone.
Ran away from home.
Broken a bone.
Eaten sushi.
Bought porn.
Watched porn.
Made porn.
Had a crush on someone of the same sex.
Been in love.
Frenched kissed.
Laughed so hard you cried.
Cried yourself to sleep.
Laughed yourself to sleep.
Stabbed yourself.
Shot a gun.
Trash talked someone and then acted like their best friend the next day.
Watched TV for 9 consecutive hours.
Been online for 9 consecutive hours.
Watched an animal die.
Watched a person die.
Had sex and/or messed around somewhere with at least 1 person present.
Pranked somebody.
Put somebody in the hospital.
Snuck into someone's room and/or your own room after being out.
Kissed somebody of the same sex.
Dressed punk.
Dressed goth.
Dressed preppy.
Been to a motocross race.
Avoided somebody.
Been stalked.
Stalked someone.
Met a celebrity.
Played an instrument.
Ridden a horse.
Cut yourself.
Bungee jumped.
Ding dong ditched somebody.
Been to a wild party.
Got caught stealing something.
Kicked a guy in the balls.
Stolen a boyfriend/girlfriend from a friend.
Went out with your friend's crush.
Got arrested.
Been pregnant.
Babysat.
Been to another country.
Started your house on fire.
Had an encounter with a ghost.
Donated your hair to cancer patients.
Been asked out by someone that you never though you'd to be asked out by.
Cried over a member of the opposite sex.
Had a boyfriend/girlfriend for over 3 months.
Sat on your ass all day.
Ate a whole carton of ice cream all by yourself.
Had a job.
Gotten cut from a sports team.
Been called a whore.
Danced like a whore.
Been mistaken for a celebrity.
Been in a car accident.
Been told you have beautiful eyes.
Been told you have beautiful hair.
Raped somebody.
Danced in the rain.
Been rejected.
Walked out of a restaurant without paying.
Punched someone/slapped someone in the face.


» 10 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 20:32:14 / tigger

Stal þessu af Þórdísi Evu :D

(x) klesst bíl vinar/vinkonu (allaveganna ömmu minnar, hún er nú enginn sérstakur óvinur)

( ) stolið bíl 

( ) verið ástfangin/n

( ) verið sagt upp af kærasta/kærustu

( ) verið rekin/n

(x) lent í slagsmálum (eða þurft að stía í sundur)

( ) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum

(x) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki

( ) verið handtekin/n

( ) farið á blint stefnumót

(x) logið að vini/vinkonu

(x) skrópað í skólanum

(x) horft á einhvern deyja

( ) farið til Canada

( ) farið til Mexico

(x) ferðast í flugvél

( ) kveikt í þér viljandi

( ) borðað sushi

( ) farið á sjóskíði

(x) farið á skíði (sem sagt í snjó)

( ) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu

(x) farið á tónleika

(x) tekið verkjalyf

(x) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna

(x) legið á bakinu úti og horft á skýin

(x) búið til snjóengil

(x) haldið kaffiboð

(x) flogið flugdreka

(x) byggt sandkastala

(x) hoppað í pollum

(x) farið í "tískuleik" (dress up)

( ) hoppað í laufblaðahrúgu

(x) rennt þér á sleða

(x) svindlað í leik

(x) verið einmana

(x) sofnað í skólanum

( ) notað falsað skilríki

( ) horft á sólarlagið

(x) fundið jarðskjálfta (hélt í alvörunni að lítill krakki hefði ollið þeim hristingi.... stupid me!)

( ) sofið undir berum himni

(x) verið kitluð/kitlaður

( ) verið rænd/rænur

(x) verið misskilin/n

(x) klappað hreindýri/geit/kengúru

( ) farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi

( ) verið rekin/n eða vísað úr skóla

(x) lent í bílslysi

( ) verið með spangir/góm

(x) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni

( ) borðað líter af ís á einu kvöldi

(x) fengið deja vu

( ) dansað í tunglskininu

(x) fundist þú líta vel út

(x) verið vitni að glæp

(x) efast um að hjartað segði þér rétt til

( ) verið gagntekin/n af post-it miðum

(x) leikið þér berfætt/ur í drullunni

(x) verið týnd/ur

( ) synt í sjónum

( ) fundist þú vera að deyja

( ) grátið þig í svefn

(x) farið í löggu og bófa leik

( ) litað nýlega með vaxlitum

(x) sungið í karaókí (horror, algjör horror, var á einhverju sjálfseyðingar skeiði þá!)

( ) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum

(x) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki

(x) hringt símahrekk

( ) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér

(x) stungið út tungunni til að ná snjókorni

(x) dansað í rigningunni

(x) skrifað bréf til jólasveinsins (skrifaði kertasníki, og bað hann vinsamlegast um að éta ekki kertin sem voru í glugganum því þau voru ekki úr tólg!)

( ) verið kysst/ur undir mistilteini

( ) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um

(x) blásið sápukúlur

(x) kveikt bál á ströndinni

( ) komið óboðin/n í partý

( ) verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n í

(x) farið á rúlluskauta/línuskauta

(x) hefur einhver óska þinna ræst

( ) farið í fallhlífastökk

( ) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig

(x) pissað úti


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 10:06:03 / tigger

Torture....

Botninum var náð í gær í Ensku 603!!! Ég hef nú oft sagt að það sé hræðilegt í tíma hjá honum, en ég hef aldrei meint það jafn mikið og núna og á sjálfsagt aldrei eftir að gera það aftur (vont getur varla versnað? 7 9 13). Richard hélt náttúrulega áfram sinni endalausu ræðu um þessa blessaða rithöfunda sína. Það var ENGINN að fylgjast með, og þaðan af síður ég, ég lá ofan á borðinu og saup hveljur í hvert skipti sem hann opnaði á sér  munninn. Ég veit ekki hvað ég á eftir að gera í 703 maður minn lifandi (já ég þarf að upplifa þá hræðilegu lífsreynslu að fara í ensku 703) .... ég á örugglega eftir að vera á barmi sjálfsvígs!!

Eníveiiiis... ég er búin að skemmta mér mikið við að kenna Lilju Rós (krílið hennar Þórdísar Evu) ýmis skemmtileg lög.. svo sem eins og 'Ég fílað dilla dilla..' og hún er nú alveg farin að syngja með þar og svo 'Þú ert nú soddans aumingi / emjandi og vælandi / en með stórutá ég stíg á þig / híá híá híá þig!' Það gengur ekki alveg eins vel með þetta en ég held að þetta sé allt að koma til, hún getur bráðum komið fram sem skemmtikraftur á Brodway!!

Djöfull.... verð að fara í dönsku...

Salut mes amies!!

Helga -pollíana? nei takk-


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.03.2006 15:03:50 / tigger

How will I die?


How Will I Die Quiz

How Will I Die Quiz

You will die at the age of 101

You will die trying to be the first person to mail yourself around the world

http://www.quizopolis.com/how_will_i_die_quiz.php#1385449507

Jebb.. ég á eftir að drepast við það að reyna að troða mér inn í umslag, líklegt að helvítis brúnin þar sem límið er skeri mig á háls.... hef ekki svo ósjaldan skorið mig á tungunni við þá iðju að sleikja það!!

Horfði takk fyrir á 13 þætti af Veronicu Mars, seríu 2, með Biddu og Lindu um helgina...... þvílíkur dauði og djöfull!!

Þetta var allt það sem ég gerði um helgina, en reyndar vann ég á laugardaginn fyrir Kristínu og dó næstum þar úr leiðindum, fór ábyggilega 30 sinnum á klósettið, settist niður á 5 mínútna fresti og tók þunglyndiskast á 3 mínútna fresti!!!

Ég hef nákvæmlega ekkert annað að segja, nema það að ég er hér í pyntingatíma með Richard Middleton..... horríbúll!

Helga -í non-stop þunglyndiskasti-


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.03.2006 15:20:48 / tigger

Aaarrrgg!

Ég á sko aldrei, aldrei eftir að borða banana aftur!!!! Ekki fræðilegur!


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 14:24:55 / tigger

Offisjallí...

... hef ég keyrt 2 milljón króna bíl :D:D:D

Ég ætti kannski að byrja á byrjuninni....

.... þannig var það að Linda, Kári, ég, Bidda og Heiðrún skelltum okkur til Akureyrar á laugardaginn. Nokkrir voru Þrándar í minni götu þar sem þetta var vinnuhelgin mín en Begga mín var svo æðisleg að vinna fyrir mig svo ég réð mér ekki fyrir kæti í ensku tíma á föstudaginn og var eins og bavíani, þangað til að trúðslæti mín breyttust í þunglyndi þar sem að Richard var ekki alveg að fatta að það væri föstudagur og talaði endalaust um sína ástkæru rithöfunda, sem fæddust árið seytjánhundruðogsúrkál, ráku við og prumpuðu, , dönsuðu og drápust svo!

   Planið var sett á að fara af stað svona hálf níu sem hélst svona nokkurn vegin, öngvir meiriháttar skandalar á ferð :P Náðum fyrst í Biddu, síðan í Rúnu sem var heima hjá sér og síðan var næsta stoppistöð hjemme hos Linda (a.k.a. Teigasel....) þar sem er komið lamb!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Ýkt sætt og krúttlegt!!! Hrútarnir hafa greinilega eitthvað verið snemma á ferð þar á bæ. En svo sýndi lambið mikla snilld og skeit á Lindu, þessarri fínu gulu slummu!

   Ekið var alveg á 90+++++ alla leiðina og var næsta stoppistöð okkar ástkæra Subway!! Ég ELSKA Subway!! Síðan réðumst við á Torgið, þar sem að Kári sökk í botnlaust þunglyndi og eigraði um eins og þroskaheftur kálfur á þunglyndislyfjum. Allir orðnir mjög þyrstir og voru farnir að slefa á fötun sem þau voru að skoða. Tókum góða rispu á A-búðinni (kann einfaldlega ekki að skrifa það og hvað þá segja það en þetta er þarna búðin með öllu draslinu í, eða Hattabúðinni eins og Heiðrún hafi held ég kallað það). Misstum okkur í sólgleraugunum og Kári toppaði það með því fara í eitthvað blátt mussudót og var gjööörsamlega eins og fáviti þarna inni, enda ég er viss um að afgreiðslukonan var á mörkunum að hringja á lögguna!!

   Kári tók nokkra hringi á bílasölunum og skellti sér svo í ríkið þar sem að fráhvarfseinkennin leyndu sér greinilega ekki hjá sumum! Fann Múttu mína í einhverri íbúð nálægt göngugötunni, þar sem hún og faðir minn ásamt einhverjur hírðust. Pabbi er altso í einhverjum karlakór sem var að halda einhverja svaka tónleika þarna.... en það er önnur saga. Tókum rúnt um göngugötunna og skelltum okkur svo í Hagkaup þar sem við hittum Mekkin sem var að vinna á kassa. Eitthvað hefur minnið brugðist mér eftir þetta þar sem ég hef ekki grænann grun um hvað við gerðum svo. Skít á það að við höfum farið aftur á Subway, mér finnst það líklegt. Ætluðum svo að fara að kaupa miða í bíó á Big Mommas house 2 en neineinei, allt uppsellt takk fyrir. Allir í fýlu og sturtuðu í sig, en ekki ég, ég fékk að vera dræver!!

   Ákveðið var svo að fara í bíó kl. 8 og  skemmtum við okkur þokkalega á henni. Stefnan ver tekin aftur á Subway, en því miður var búið að loka. Dældum þá á bílinn, misstum okkur í Glow stickunum (skreyttum bílinn að utan sem innan) og héldum þá heim á leið. Kári varð eitthvað svangur leiðinni (þrátt fyrir að vera búinn að éta 24 tommur af Söbveium) og ákvað að fá sér eitt Glow Stick..... og samkvæmt áreiðanlegum heimildum er það ekki gott á bragðið :P

   Fólk var farið að verða eitthvað grömpí þegar ferðin var á enda svo mórallinn var ekki upp á marga fiska. Fékk nett stresskast þegar bíllinn fór að rása skemmtilega á veginum en þá var bara komin flúgandi hálka. Stukkum út og skautuðum svona fínt á malbikinu, þvílík ísing sem hafði plantað sér þarna!! Þoka og leiðindi byrgðu okkur sín en komumst heim á endanum, hentum Heiðrúnu heim til sín, Kári tók jackið á öllum inni á Hetjunni og ég brunaði svo heim á mínum 790.000 króna bíl og fór að sofa!!!!

   Eitt sem einkenndi þessa ferð óhóflega mikið var það að enginn virtist geta komið réttri setningu út úr sér!!!

Keypti mér m.a.:

  • Gorillaz bol
  • Linkin Park plakat
  • Eyrnalokka
  • Puma skó... sem eru allt of dýrir!
  • Curtain Call með Eminem
  • Monster - sem er viðbjóðsleg mynd.... grenjaði ooofsalega mikið í endanum

Þá er loksins komið að lokum á þessari blessuðu færslu... guð sé oss næstur ég er að verða komin með gigt í puttana!!!

Helga -Jakob heiti ég, Jakob heiti ég-


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 10:54:00 / tigger

Sértu með gyllinæð, þá eru miklar líkur á því að þú skítir gulli!

5 comment um mig sem þið eigið ekki að vita (búin að smyrja heilann og hann er kominn í gang)

  • Eins og áður sagði lærði ég að hrækja úr Titanic!
  • Ég á svo óhemju háværa vekjaraklukku að ég þarf alltaf að leggja hana á hvolf svo ég geti farið að sofa!
  • Ég er byrjuð á danska kúrnum. Búin að vera á honum í viku og er búin að missa 2,7 kíló :D:D
  • Ég abbsolútlí haaata stjörnuspár, það er eitthvað það heimskulegasta og asnalegasta sem ég veit um!
  • Það er stórar líkur á því að ég sé með athyglisbrest.... sem er alveg ágætt að vita því þá veit ég að það er ekki bara heimska sem er að flækjast fyrir mér!

Auglýsi hér með eftir skammtímaminni á lágu verði.

Ég hef ekkert skammtímaminni, man aldrei neitt og mun sjálfsagt aldrei gera það. Man ekki einu sinni hvað ég át í hádegismatinn í gær.... bömmer.

Gúglaði 'skammtímaminni' og fékk upp þessa mynd:

Ímynda mér að þetta sé eitthvað afbrygði af Marijuana!

Gúglaði 'Marijuana':

Þetta er nú ekkert svo óskaplega frábrugðið! Svo, hér er komin góð og gild lausn við skammtímaminnisleysi. Reykið Marijuana!! Ekkert hreinsar hugann eins vel og fær ykkukr til að geyma ykkar dýpstu hugsanir lengi og vel inn í ykkar skíra og vel fægða haus!

Eníveis, Danski kúrinn. Byrjaði á honum fyrir viku. Og eins og komið hefur fram er ég búin að missa 2,7 kíló!! Það eru einstaklega góðar fréttir fyrir mig, held samt að mamma mín hafi verið enn glaðar. Fórum á fund í gær og þar voru allar kjellurnar viktaðar (við erum um eitthvað 60!!) og viti menn, ég hafði bara stórlést. Maður þarf að fylgja alls konar ráðum, t.d. í hádegismat og kvöldmat þarftu takk fyrir að éta 300 grömm af grænmeti og fyrir þá sem ekki gera sér grein fyrir því hvað það er mikið þá er það  liggur við heil svona skál:

Unbilíveibúl.... en virkar :D

5 mín í tíma :(

Sææælar

Helga -jórturdýr-


» 5 hafa sagt sína skoðun

10.03.2006 23:14:19 / tigger

Djöfull...

Smintið er búið.... hvað geri ég nú???

Málhöltu fólki hefur greinilega verið ráðlagt að halda sig frá þessari síðu :P Ekki margir hafa skráð sig í Gíska flokkinn :D

En meira af málhöltu fólki. Kínversku, Ítölsku og allt þetta hinir gaurarnir sem koma niður af Kárahnjúkum á sunnudögum segja aldrei "Thank you".... heldur "Seink jú!!!" Seink jú, mér finnst þetta alveg brilliant ef við blöndum smá Völu Matt í þetta :P

Og enn meira af málhöltu fólki. Þetta flokkast nú kannski ekki undir málheltu en......... Eitt af uppáhaldsorðum Richards nokkurs Middletons er "Hello" (fyrir utan sex, fuck og allt það ...) Þannig er nú mál með vexti að ef þú segjir t.d. "uuhh... richard?" (semsagt skilur ekki rassgat í verkefninu) þá segjir hann alltaf "Hello"!! Lá við að ég fengi krampakast þegar ég heyrði þetta fyrst :D:D

Hehe, heyrði eitt mjög fyndið á Fm 957 um daginn. Var að hlusta á lagið Shake that með Eminem og Nate Dogg, og þá var búið að segja svona hljóðmerki yfir öll "ljótu" orðin!!! Og það eru nú alveg slatti af ljótum orðum í þessum texta skal ég segja ykkur. T.d. viðlagið er svona byrjar svona "Shake that ass for me, shake that ass for me..."  En það mátti náttúrulega ekki berast orðið "ass" í okkar viðkvæmu eyru svo það heyrðist ekki svo textinn hljómaði nokkurnveginn svona "Shake that (silent) for me, shake that (silent) for me....." Og til þess að bæta ástandið, heyrði ég það aftur daginn eftir og þá var það spilað án hljóðmerkja!!! Það er erfitt að ákveða sig, það er greinlegt!

Úhúhúhhú (excited) , fann South Park Cartoon Creator.... geggjað flottur. Verst bara að ég kann ekki að koppía hann... vantar eitthvað rosalegt tölvugen í mig.

-- http://www.planearium2.de/flash/spstudio.html --

Úhúhúhúhú (even more excited)!!! Hey allir, næst vil ég fá svona í jólagjöf:

Þetta eru svo mikil kaaaarúttt!!!

Helga -code name: helic-


» 16 hafa sagt sína skoðun

09.03.2006 20:49:09 / tigger

Grein sem birtist í Morgunblaðinu...

...fyrir nokkrum árum, höfundur er Kristín Marja Baldursdóttir:

Matarreikninginn má lækka verulega með útsjónarsemi, sumir telja jafnvel um 30 - 40 þúsund krónur á mánuði, eða um 400 þúsund á ári. Frú nokkur hér í borg (Reykjavík) sem rekur fjögurra manna heimili fer með um 25 til 30 þúsund krónur í mat á mánuði, en reglan hjá henni er þessi: Kaupi engan óþarfa og burt með allar gerviþarfir.

Þessi frú segist kreista hverja krónu þar til hún skrækir, og að sjálfsögðu tók ég það að mér að kreista frúna þar til hún gafst upp og lagði öll spilin á borðið.

Og þá hefst lesturinn:

Frúin býr til allt sjálf sem hún getur búið til. Hún stígur aldrei fæti inn í bakarí, segir að þau séu okursjoppur. Einu sinni í viku bakar hún 70 til 80 rúnstykki, sem hún frystir og hitar upp í örbylgjuofni ef með þarf. Henni finnst rúnstykkin nýtast betur en brauðin. Með því að baka brauðin sjálf getur hún sparað sér um 45 þús. kr. ári, sé miðað við eitt brauð á dag.

Hún hefur oft pítsu í matinn, og að sjálfsögðu býr hún hana líka til sjálf. Ef miðað er við eina pítsu á viku, sparar hún sér um 43 þús. kr. á ári. Einnig býr hún sjálf til sitt múslí, eða morgunkorn, sem fjölskyldan borðar stundum á morgnana. Stundum setur hún líka múslí í rúnstykkin, ásamt hveitiklíði.

Hún kaupir aldrei nokkurn tíma álegg. En ef menn kaupa þetta hryllilega dýra álegg sem selt er í búðum oft á 200 kr. bréfið, við skulum segja tvö bréf á viku sem sumum þykir ekki mikið, kostar það um 21 þús. kr. á ári. Hún sparar sér það. Það sem frúin kaupir ofan á brauðið er "fondú" ostur, sem er um 200 krónum ódýrari en brauðostur. Hún notar líka hunang og marmelaði ofan á brauð, en annað ekki, og basta. Krakkarnir eru hvorki hrifnir af kjötáleggi né gúrkum eða tómötum ofan á brauðið sitt. Rækjusalat eða kransæðakrem eins og það er kallað á þessu heimili, býr frúin aldrei til og sárvorkennir fólki sem er að kaupa slík tilbúin salöt í búðunum.

Af öðrum mjólkurvörum kaupir hún aðeins mjólk, súrmjólk og skyr. Aldrei jógúrt, aldrei rjóma og notar jurtasmjörlíki ofan á brauð.

Í fiskbúðina fer hún tvisvar til þrisvar í viku, og einu sinni í viku hefur hún kjöt í matinn. Kjötið sem hún kaupir er annaðhvort hakk eða lifur. Tvisvar á ári kaupir hún lambaskrokk heilan. Hún segist nýta allt kjötið af skrokknum, til dæmis sker hún allt kjötið utan af feitu súpukjötsbitunum og notar það í pottrétti. Kótilettur eru ekki vinsælar á heimilinu sökum fitunnar á þeim, og hryggurinn nýtur engra vinsælda heldur af sömu orsökum, en "þau þræla honum ofan í sig" eins og hún segir.

Samkvæmt útreikningum mínum fer hún líklega með 30.000 kr. á ári í kjötvörur, en ekki er óalgengt að fjögurra manna fjölskylda fari með um 80.000 kr. á ári í slíka vöru. Og þykir ekki mikið.

Þetta var sem sagt kaflinn um rollurnar.

Það eina sem frúin lætur virkilega eftir sér í matvörukaupum, eru grænmeti og ávextir. En verðið er að sjálfsögðu stúderað. Ef kínakálið til dæmis er of dýrt að hennar mati, er það ekki keypt. Hið sama gildir um allt annað grænmeti og ávexti að sjálfsögðu líka.

Fjölskyldan drekkur aldrei með mat, en að öðru leyti er drukkið vatn, mjólk, te og kaffi. Frúin kaupir til að mynda aldrei ávaxtasafa á fernum. En ef hún keypti eina fernu á dag, á tæpar 100 krónur, mundi það kosta 33.600 kr. á ári. Sparar sér þann aur. Hún kaupir aldrei kókómalt og ef krakkana langar í kakó, verða þeir veskú að búa það til upp á gamla mátann. Yngsta barnið tekur með sér safa eða djús á lítilli fernu í skólann, en hún kostar um 20 kr.

Fjölskyldan hefur öll með sér nesti í skólann og í vinnu. Heimabökuð rúnstykki og ávöxt. Þar sparast minnst um 50 þús. kr. á ári, ef reiknað væri með að hver og einn myndi kaupa sér eina samloku á dag á 200 kr., og ekkert annað.

Gos er aldrei keypt, ekki einu sinni um helgar, takk fyrir. Bjór er aldrei keyptur, en um það bil þrjár flöskur af léttu víni eru keyptar á ári.

Hún kaupir alltaf ódýrasta þvottaefnið og kaupir aldrei eldhúsrúllur. "Burt með allar gerviþarfir", eins og hún segir.

Frúin hefur sem sagt kjöt einu sinni í viku, tvisvar til þrisvar fisk, einu sinni í viku hefur hún alltaf grjónagraut og nýbökuð rúnnstykki, og svo er eitt og annað á matseðlinum eins og til dæmis spaghetti með grænmetissósu, pítsu, linsubaunapottrétt og aðra pott- og pastarétti.

Og þannig fara menn að því að borða ódýrt og líta samt hraustlega út.

Satt best að segja, líður mér hálf illa. Það liggur nú bara við að mér líði ágætlega eins og ég er. Ef ég ætti þessa mömmu, hefði ég flutt út um 5 ára aldur!!!!!!! Mér er bara nákvæmlega sama þótt þessi anskotans peningur sparist, ég myndi ekki vilja missa af öllu þessu..... mér er bara flökurt....

Helga -feeling baaaad-


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.03.2006 20:41:21 / tigger

Há tú spekúlera...

Það eru aðeins tveir hlutir til að spekúlera í.

Annað hvort er maður heilbrigður eða veikur. Ef maður er heilbrigður, þá er ekkert að spekúlera í.

Sé maður veikur, eru aðeins tveir hlutir að spekúlera í: Verður maður frískur aftur, eða á maður eftir að deyja.

Verði maður frískur aftur, þá er ekkert að spekúlera í.

Ef maður deyr, eru aðeins tveir hlutir að spekúlera í: Fer maður í himnaríki eða til helvítis.

Fari maður til himna, þá er ekkert að spekúlera í.

Fari maður til helvítis á maður eftir að vera svo upptekin af því að heilsa upp á gamla vini, að maður hefur engan tíma í að spekúlera í.

Helga -le spekulanthe-


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.03.2006 21:03:10 / tigger

Ekki sátt!

Ég get nú ekki viðurkennt það að ég sé sátt með þetta!! Gruna Hafþór sterklega um að hafa kosið óhóóóflega oft!! Þú átt von á kæru venurenn!

En það er komin ný skoðana könnun. Hef rekið mig óþarflega oft á það að fólk segir gíska, sem fer óendanlega mikið í pirrurnar á mér. Langar að vita hvað það er mikið til af málhöltum hér :P

Viskukorn dagsins

  • Lukku Láki heitir Lucky Luke á ensku - var að komast að þessu :D

Í stað þess að koma með fimm staðreyndir um mig sem enginn veit ætla ég að koma með svona eina í einu.... hugsanakerfið í mér er bara ekki gert fyrir marga hluti í einu!!

1 staðreynd um mig

  • Ég lærði að hrækja úr Titanic!!!

Helga -skítðigíbakiðburtuferðu-


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.02.2006 11:07:05 / tigger

Tjsíng tjsíng valla valla bíng beng...

Bróðir minn var alveg óhemju fyndinn í gær.

Hann var eitthvað að skoða nýja kortið mitt, uppgötvar að það stendur tékkaábyrgð á því. Kemur hann ekki þá með þessa gullsetningu "Hehe, það ber einhver Tékki ábyrgð á kortinu þínu!!!"

Aulahúmor af bestu gerð!!

Helgin var bara bísna skemmtileg. Stelpurnar komi í Ártröðina og eftir mikið skrafs og ráðagerðir pöntuðum við loksins pizzu með diggri hjálp frá Ingu, systur hennar Biddu. Var búin að vera að vinna um daginn svo að ég hefði alveg getað verið hressari. Reynda að sulla í mig einhverju en varð samt aldrei skemmtilega full eins og ég vildi að ég hefði verið. Skelltum okkur á ball, nema Sonja, hún ákvað að lúlla bara inni í rúmi því líðan hennar var ekki sem best, vægast sagt. Fullt af fólki á balli, blindfullt og misskemmtilegt.

Sunnudagurinn var óvenju óviðburðarríkur. Vaknaði um hálf tólf. Át pizzu. Settist upp í sófa og glápti á How clean is your house, og svona ógeðslegt hús hef ég ekki séð lengi. En komst að einu fyndnu, ef þú ert með einhverja skítuga skó, þrífðu þá þá með bananahíði!! Fór svo til Þórdísar og við horfðum á vídjó.... eins og ég sagði, óvenju viðburðarríkur. Keyrði svo heim og vældi í mömmu um fiski- og rjómabollur.

*talist með Nýjasta tækni og vísindi málróm*

Veriði sæl

Helga -tjsingtjisng...-


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6